Working

Pasta sósa

Sósa sem hentar vel með hvaða pasta sem er. Eins er hægt að nota þetta með t.d. pyslum, hvort sem er kjötpyslum eða veganpylsum og t.d. skera pylsurnar í bita og þræða upp með spagetti.

Heimagert hvítlauksbrauð passar vel með.

Hráefni

  • 8 hvítlauksgeirar
  • 1 stk laukur (má sleppa)
  • 1 stk papríka (má sleppa)
  • 1 stk grænmetisteningur (má sleppa)
  • 2 dósir hakkaðir tómatar (natural, engin krydd)
  • 1/2 bolli basilicum
  • 1 tsk balsamic vinegar
  • 1-2 tsk maple síróp
  • 1 tsk salt (smakkið til)
  • olía til steikingar

Aðferð

  • steikið hvítlauk, lauk og papríku upp úr olíu við miðlungshita þar til mjúkt
  • bætið hökkuðum tómutum útí ásamt basilicum og látið malla í 45 mín
  • bætið grænmetistening útí
  • bætið vinegar og salti útí
  • bætið sírópi útí
  • ef sósan er of "kekkjót" ma jafna hana út með sprota